... að það er mánuður síðan að síðasta færsla var skrifuð hérna inn hef ég ákveðið að fanga því með annari færslu!
hehe djók..
stelpur við erum án efa lélegustu bloggarar sem sögur fara af, þetta er ekki hægt!
Margt vatn hefur runnið til sjávar síðan síðast
Ég fór til eyja, sem er það skemmtilegasta sem ég veit um! Þessi helgi var einum of nett, mikið drukkið, borðað óhollt og sungið og dansað fram á nótt! Mjög svo gaman, veðrið lék við okkur allan tímann og það var ekkert sem gat gert þessa helgi betri en hún var! Hún var einum of sjúkleg!
Myndir væntanlegar inn á veraldarvefinn á næstu dögum
Svo.... er ég og Ingi Fannar búin að fjárfesta í íbúð (eða svona næstum því, verið að ganga frá smáhlutunum) við erum sem sagt búin að fá íbúð á Stillholti 2 sem er nýtt húsnæði mjög svo kósý lítil íbúð. Fín svona til að byrja með
Hlakka sjúklega mikið til að flytja inn og gera fínt í minni EIGIN íbúð!
Svo get ég boðið ykkur í mat eða kökur eða e-ð svona sneddý í minni eigin íbúð og engin að þvælast fyrir
EN... svo fékk ég mail frá Bigga Leif um daginn og þau vilja fá mig út til Lúx sem aupair og núna er ég alveg lost! mig langar auðvita rosalega mikið að fara út því þetta er svona tækifæri sem maður fær bara once in a lifetime!
en samt veit e´g ekki hvað ég á að gera! Var eiginlega búin að afskrifa Lúx því ekkert heyrðist frá þeim svo lengi, fór í íbúðarhugleiðingar og þess háttar og er orðin mjög svo spennt að fá að fara að stússast í því dæmi. Þannig núna er ég alveg lost!
jæja.. spurning að fara að halda áfram að vinna! Stelpur næst vil ég sjá færslur frá ykkur!!
kv. Friðmey sem getur ekki tekið ákvarðanir!